Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Bensínverđ

Jæja félagar....

Bara svo allur vafi sé tekinn af mönnum og engar getgátur séu í gangi þá hefur verð á bensínlíter hækkað um 87 krónur per líter. Því kostar líterinn nú 273 krónur á Akureyri. Þetta fékkst staðfest hjá Skeljungi nú í liðinni viku.

Ástæðan fyrir þessari hækkun er sögð vera sú að nú er einungis einn aðili sem framleiðir Avgas í Evrópu og einnig hækkandi heimsmarkaðsverð

Nú orðið erfitt að fá Avgas víða í Evrópu og algengt er að menn séu að breyta flugvélunum þannig að þær megi ganga fyrir bílabensíni.  Einnig eru fyrirtæki að þreifa fyrir sér með framleiðslu á nýju og umhverfisvænna eldsneyti sem heitir swift fuels, en það er þó ekki eina nýja tegundin sem kemur á markað því fleiri tegundir eru nú í þróun. Það verður því spennandi að fylgjast með hvað gerist í þessum efnum.

Slóð á síðu fyrirtækisins sem selur STC fyrir bílabensín

Hér

 

Kv. 

Stjórni



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning