Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Betur má ef duga skal

Sunnudagurinnnn 16. maí hafði verið auglýstur vinnudagur og tiltekt  á Melum. Haft var samband við öll aðildafélög Flugkúbbs Íslands en einungis mættu 8 félagar Flugmóldelfélagsins auk undirritaðs, fulltrúa VFA. Einhverjir voru að tínast að seinnipartinn þegar vinnu var lokið og menn á heimleið, ekki beint til að kætast yfir.
 
Norðurgaflinn á Hyrnu er illa farinn af fúa og verður unnið að viðgerðum nú í vikunni sem og endurklæðningu á gaflinum öllum.
 
Í öllum þeim endurbótum sem hafa átt sér stað á Melum undanfarin ár bera félagar FMFA höfuð og herðar yfir aðra hvað verðar vinnuframlag og félagsþroska, eitthvað sem félagar VFA og SFA mættu tileinka sér.
 
Betur má ef duga skal og bara spurning um tíma hvenær undirritaður segir af sér sem fulltrúi VFA í FÍ þegar svona er komið.
 
Það geta ekki allir bara étið kökuna!
 
 
Georg Ólafur Tryggvason


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning