BIMM
Hyrna kom sjálf vel undan vetri. Það voru engar sjáanlegar skemmdir en hún var þó talsvert skítug. Allt var voðalega vorlegt framfrá. Vatnið úr krananum var með sínum hefðbundna kastaníubrúna keim og fjöldi dauðra flugna á gólfinu var að sliga upp í hundraðið. Vegurinn niður að Hyrnu er að verða þurr en þyrfti sennilega um hálfan mánuð í viðbót til að hægt sé að hleypa á stórvirkum vinnuvélum.
Flugbrautin var líka tekin út og ég verð að segja að hún lítur mjög vel út miðað við hvernig hún hefur verið síðustu vor. Síðasta haust fór Dói frameftir og setti skít og moð á brautina og er það greinilega að hjálpa til þar sem grænar spírur voru farnar að sjást undir moðinu. Brautin er þó ekki orðin nógu þurr svo hægt sé að lenda á henni.
Fyrirhugað er að halda þrifadag/Grand opening um miðjan maí og hvetjum við sem flesta til að koma og hjálpa til við að koma svæðinu í gott horf. Það er komið svolítið af rusli á svæðið sem þarf að hreinsa upp og eins og áður sagði þarf að þrífa Hyrnu hátt og lágt.
Gunnar Víðis.
