FJÖLSKYLDUDAGUR!
Fréttir - laugardagur 22.ágú.09 23:59 - Lestrar 614 - Athugasemdir (0)
Laugardaginn 22. ágúst er fyrirhugað að halda fjölskyldudag á Melgerðismelum ef veður leyfir. Kveikt verður upp í grillinu kl. 14:00 og verða pylsur grillaðar ofan í mannskapinn en einnig verða vöfflurnar á sínum stað að venju. Ýmislegt verður í boði fyrir smáfólkið en einnig er þetta kjörið tækifæri fyrir félagsmenn að deila áhugamálinu með fölskyldunni og eiga góðan dag með vinum úr grasrótinni. Vonumst til að sjá sem flesta í sólskinsskapi. - Kveðja, stjórnin.
