Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar VFA

Fyrsti stjórnarfundur nýkjörinnar stjórnar VFA var haldinn annan dag páska

Nýkörin stjórn VFA hélt sinn fyrsta fund þann 5. apríl s.l.  Fyrsta mál á dagskránni var að stjórnin skipti með sér verkum og má sjá hverjir eru í nýju stjórninni hérna á heimasíðunni undir "starfsemin".

Undirbúningur fyrir dagskrá sumarsins stendur yfir um þessar mundir og mun sumardagskráin líta dagsins ljós núna um miðjan apríl mánuð.  Fastir liðir eru alltaf á dagskránni svo sem eins og lendingakeppnir og vöfflukaffi en auk þess verður reynt að gera eitthvað annað spennandi.  Ef félagsmenn vilja koma með hugmyndir fyrir sumardagskrá félagsins bendum við fólki á að senda okkur endilega tölvupóst.

Ýmslegt stendur fyrir dyrum hjá félaginu.  Má þar kannski helst nefna Young Eagles verkefnið sem  Kristján Víkingsson mun koma til með að hafa veg og vanda af.  Þetta er verkefni sem EAA samtökin hafa verið með í gangi frá því 1993.  Hugmyndin er að gefa krökkum og unglingum tækifæri á að fræðast um flug og flugvélar og fá svo í lokin að fara í stuttan flugtúr yfir bæinn.  Stefnt er að því að hafa kannski einn laugardag í mánuði tileinkað þessu og verður vonandi hægt að virkja sem flesta meðlimi í VFA til að leggja þessu lið.

Vélflugfélag Akureyrar verður 35. ára gamalt núna 1. maí n.k.  Haldin verður afmælisveisla þann dag og verður það nánar auglýst síðar.  

Við vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir þetta sumarið og að gróskan í félagsstarfinu verði sem mest.

Meira seinna...

Stjórnin

 

 



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning