Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Galakvöld Flugáhugamanna 2009

Galakvöld Flugáhugamanna verður haldið laugardaginn 31. Október á Friðriki V.  Húsið opnar kl. 18:30 og borðhald hefst kl. 20:00. Fordrykkur í boði hússins.  Fatastandard: Herrar, smoking eða fín föt.  Dömur, hálfsíðir eða síðir kjólar.. 

Matseðill:
Listauki: eitthvað forvitnilegt úr eldhúsinu
Forréttur: Heitreykt bleikja með kryddjurtaolíu og rótargrænmeti
Milliréttur: Villisveppasúpa
Aðalréttur: Ofnbakaður lambahryggsvöðvi með grænmeti kartöflum og kryddsósu
Ostar: Bestu íslensku ostarnir með sultu
Eftirréttur: Súkkulaði og ís.

Fluggrín, söngur og myndasýning

Hljómsveit Guðrúnar Gunnars leikur fyrir dansi til klukkan 2:00

Séð um geymslu bíla fyrir gesti og bílar og bílstjórar keyrðir heim eftir fagnað, ef ekki reynist ástand á keyrara gott.

Þátttaka tilkynnist til Flugsafnsins á tölvupósti flugsafn@flugsafn.is eða í síma 4614400 fyrir 7. okt. 2009. Skráning er bindandi og bundin kreditkorti viðkomandi.

Verð pr. mann 12.000 kr.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning