Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Mela-teiti n.k. laugardag - Flugsamkoma á BIRK 28. maí

Næstkomandi laugardagskvöld, 21. maí, verður haldið Grand Open veisla á Melgerðismelum. Að sjálfsögðu verður "fírað" upp í grillinu og mjöður í dósum verður við hendina. Tekið verður við hóflegum 1000 kr skemmtanaskatti að hætti Skallagríms. Allir félagar eru hvattir til að mæta og eiga góða kvöldstund saman á sveitaróðalinu okkar. Grillið verður orðið heitt kl 19:30. Laugardaginn 28. maí mun Flugmálafélag Íslands í samstarfi við Isavia halda flugdag á Reykjavíkurflugvelli. Félagar eru hvattir til að dusta rykið af yfirlandsflug-hæfileikunum og skella sér í flugtúr til höfuðborgarinnar. Stjórnin


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning