Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Myndakvöld með Herði Geirssyni

Jæja góðir félagar það er kominn tími til að hrista af sér doðan. Fimmtudaginn 10. mars næstkomandi ætlar Hörður Geirs að segja okkur frá skemmtilegri ferð sem hann fór á tvö söfn í Chino í Californiu núna í október s.l. Tók hann mikið af myndum eins og hans er von og vísa og verður efalaust gaman og fróðlegt að fá ferðasöguna í máli og myndum. Þetta byrjar klukkan 20:00 stundvíslega og boðið verður upp á kaffi og með'í. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðjur Stjórnin


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning