Ný stjórn VFA tekin viđ
Ný stjórn var kosin á fundinum og er hún skipuð svona:
Ragnar F. Ragnars formaður
Sveinn Ásgeirsson gjaldkeri
Þórir Gunnarsson ritari
Kristján Þór Kristjánsson meðstjórnandi
Jörgen Snædal meðstjórnandi
Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, ársskýrsla lesin og rædd og ársreikningar samþykktir.
Tvennar lagabreytingar komu fram. Annars vegar var samþykkt að vilji menn breyta lögum félagsins á aðalfundi, þá skuli koma fram með þær 14. dögum fyrir aðalfund og munu þá lagabreytingarnar fylgja með fundarboði.
Hins vegar var samþykkt að einungi þurfi einn skoðunarmann reikninga í stað tveggja áður.
Árgjald var ákveðið óbreytt 6000 kr. Hins vegar var ákveðið í ljósi frekar slæmrar afkomu á síðasta ári að hefja innheimtu 1000 kr. veitingagjalds á viðburðum félagsins. Mjöður og matvara hafa hækkað mikið og því hefur verið ákveðið að þeir sem neyta veitingana borgi örlítið upp í kostnað.
Fundargerð aðalfundarins verður hreinskrifuð og sett inn á heimsíðuna.
kveðjur
Ragnar
