Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Tiltektardagur í Hyrnu

Sunnudaginn 16. maí er fyrirhugaður viðgerðar og þrifdagur á melunum. Þá ætla menn og konur, úr flestum félögum vonandi, að mæta í flugstöð Þórunnar hyrnu og taka til hendinni. Það á að gera við skemmdir á norðurhlið hússins og þrífa það hátt og lágt ásamt nánasta umhverfi. Virkjum nú félagsandann og fjölmennum inn á mela á sunnudaginn upp úr hádegi og komum Hyrnu í stand fyrir sumarið, margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning