Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Betur má ef duga skal

Sunnudagurinnnn 16. maí hafði verið auglýstur vinnudagur og tiltekt  á Melum. Haft var samband við öll aðildafélög Flugkúbbs Íslands en einungis mættu 8 félagar Flugmóldelfélagsins auk undirritaðs, fulltrúa VFA. Einhverjir voru að tínast að seinnipartinn þegar vinnu var lokið og menn á heimleið, ekki beint til að kætast yfir.
 
Norðurgaflinn á Hyrnu er illa farinn af fúa og verður unnið að viðgerðum nú í vikunni sem og endurklæðningu á gaflinum öllum.
 
Í öllum þeim endurbótum sem hafa átt sér stað á Melum undanfarin ár bera félagar FMFA höfuð og herðar yfir aðra hvað verðar vinnuframlag og félagsþroska, eitthvað sem félagar VFA og SFA mættu tileinka sér.
 
Betur má ef duga skal og bara spurning um tíma hvenær undirritaður segir af sér sem fulltrúi VFA í FÍ þegar svona er komið.
 
Það geta ekki allir bara étið kökuna!
 
 
Georg Ólafur Tryggvason


Ég held að félagsþroski sé nú ekkert á verra stigi hjá VFA heldur en FMFA og SFA
Gott framtak
Þetta er frábært framtak hjá ykkur og þú hefur staðið þig afburðarvel Georg sem aðal spaði í að halda Hyrnu við og fyrir hönd SFA færi ég þér þakkir fyrir. Ég tek þetta til mín og reikna með að félagsmenn SFA geri það líka, þörf og góð ámynning. Það gætti einhvers misskilnings því að ég frétti að hefjast ætti handa um hádegi en vegna annara verkefna sem ég varð úr að leysa þá mætti ég með öðrum félaga SFA ekki fyrr en klukkan þrjú og var okkar markmið að sjá um hreingerninguna fyrst við vorum svona seinir en þar sem smíðavinnan var stærri en reiknað hafði verið með þá var lítið vit í að fara að þrífa á þeim tíma. SFA er nú ekki stórt félag í dag en vonandi fer að rætast úr því og ég mun hvetja mannskapinn til að taka virkan þátt í þeim verkum sem þarf að vinna. Áfram Georg í stjórn Flugklúbbs Íslands ! Kveðja Zippo
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning