Vélflugfélag Akureyrar

Vélflugfélag Akureyrar félag áhugamanna um flug

Fréttir

Mela-teiti n.k. laugardag - Flugsamkoma á BIRK 28. maí

Næstkomandi laugardagskvöld, 21. maí, verður haldið Grand Open veisla á Melgerðismelum. Að sjálfsögðu verður "fírað" upp í grillinu og mjöður í dósum verður við hendina. Tekið verður við hóflegum 1000 kr skemmtanaskatti að hætti Skallagríms. Allir félagar eru hvattir til að mæta og eiga góða kvöldstund saman á sveitaróðalinu okkar. Grillið verður orðið heitt kl 19:30. Laugardaginn 28. maí mun Flugmálafélag Íslands í samstarfi við Isavia halda flugdag á Reykjavíkurflugvelli. Félagar eru hvattir til að dusta rykið af yfirlandsflug-hæfileikunum og skella sér í flugtúr til höfuðborgarinnar. Stjórnin


Gaskútar ofl.
Bara svo þið vitið það þá var búið að fylla á auka gas kútinn og kaupa TP ofl. þannig að það ætti að vera allt til alls.
Glæsilegt takk fyrir það Zippo. Að sjálfsögðu myndum við vilja sjá sem flesta svifflug, módel og fismenn á mæta á svæðið.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning