
Vélflugfélag Akureyrar (VFA) er félagsskapur áhugamanna um flug og þó sér í lagi einkaflug. Aðstaða félagsins er hjá Flugskóla Akureyrar á Akureyrarflugvelli yfir vetrartímann og svo í Flugstöð Þórunnar Hyrnu á Melgerðismelum yfir sumartímann. Ef þú ert áhugamaður um flug þá ætturðu að kíkja í kaffi og vöfflur til okkar á laugardögum milli 15 og 17 og hver veit nema að þú komist í loftið!
